Unnur's profileStaðurinn-stundinPhotosBlogLists Tools Help
Photo 1 of 12

Staðurinn-stundin

10/9/2008

Vá... Allt að gerast

Ég er að hugsa um að búa í Noregi núna, þeir hafa það bara ágætt, ekki allt að fara til......
1/30/2008

svo..

Ég er ekkert búin að reikna en er búin að lesa tvo kafla í forritun.
1/29/2008

Bugl

Ég er í Reykjavík og er búin að vera hér í viku.
Tinna er á BUGL og ég er henni til halds og trausts. Buglarar ætla að fylgjast með henni og reyna að stilla lyfjaskammtinn svo að henni fari að líða betur. Vonandi helst svo það sem áorkast þarna þegar heim kemur. Á meðan verð ég að vera dugleg að læra, hafa sjálfsaga og standa ein.
Við Tinna höfum gert svolítið af því að fara í sund þessa daga, við höfum aðalega setið í pottinum og rabbað en í dag syntum viðOpen-mouthed Það var ekki langt en samt miklu meira en ekkertLight bulb.
Það sem ég er að hugsa um núna er að fara í bíó og fara svo snemma að sofa til að vakna í fyrramálið og setjast niður og reiknaSnail
Þangað til næst.....Note
9/8/2007

Skólinn

Jæja ég er búin að vera þrjár vikur í skólanum og farin að finna fyrir heimalærdómnum. Þetta verður dálitið strembið en ég vil að þetta gangi. Svo... 
5/8/2007

Kosningar

Úff, kosningardagur
Ég kvíði yfirleitt þessum degi þar sem ég get ekki ákveðið fyrr en á síðustu stundu hvað ég á að kjósa. Mér finnst það varla skipta máli, þegar þetta fólk kemst til valda þá verða þau öll að sömu vitleysingjunum og standa ekki við neitt, eða geta ekki staðið við neitt. Þau vita vel að þau geta bara efnt smá hluta þeirra loforða sem að þau gefa. Svo eru loforðin svo víð, eins og hjá Frjálslyndum, þeir gætu eins sagt lofum friði á jörð..... það er ekki séns að þeir geti staðið við svoleiðis loforð og það er ekki séns að ég kjósi svona vitleysingja. garg. Hækkum barnabætur sagði Framsókn síðast, hvar er það. lækkum skatta ok þeir gerðu það. lækkum matarverð, já rétt fyrir kosningar. Ég man ekki öll þessi loforð enda stóla stjórnmálamenn á það, minni almennings er svo lélegt. Verum ömuleg og hendum svo til þeirra beini og þá erum við frelsarinn.
 
5/6/2007

Hryllilegt

Það er farið inn um gluggann og barnið tekið sofandi Hvað er að fólki.
5/5/2007

MSN

Ég leyfði Maroni að fá msn, ég hef haft mínar efasemdir vegna þess hvað hann er ungur en lét undan. Fékk líka stórt, ég elska þig mamma fyrir. Það hefur verið dálítið um einelti á msn hjá þessum aldri og þess vegna var ég ekki neitt rosalega spennt fyrir þessu en mun fylgjast mjög vel með og grípa inn ef þarf. Bið að heilsa.